Líkar ekki þessi síðaBjörk Stefánsdóttir
ætla leti -blogga áfram á hinni síðunni er ekki mjög nýjungagjörn og kann ekkert á þetta5 ÁRABjörk Stefánsdóttir
elsku litla stóra stelpan mín er 5 ára í dag,Það var bökuð þessi líka svaka flotta afmæliskaka í gær en ekki get ég gortað mig af henni Silvía (og Birkir smá) á allan heiðurinn af henni.
En annars er lítið að frétta, flytjum vonandi bráðum í eilífðar-húsið, gengur vel að mála og svona.
Er annars bara að vinna og vinna og geri ekki neitt þess á milli hehe.
En ætli ég verði ekki að standa upp af mínum f...rassi og taka aðeins til ef það koma nokkrir gestir í dag.
Ég varð bara aðeins að sína smá lit og blogga smá er svooo löt við það.
Kv. Björk lata
Pestabælið miklaBjörk Stefánsdóttir
jæja komin tími á smá blogg
börnin búin að liggja í pest og svo er ég tekin við núna, ætla ekki í vinnu á morgun en er samt með smá móral því það er sko ekki auðvelt að hringja og tilkynna veikindi, það er alltaf eins og maður sé að svíkjast undan, ég myndi alveg skilja neikvæð viðbrögð hjá yfirmanninum ef þetta væri að koma fyrir í hverri viku að maður sjálfur verður veikur, en svo er ekki, en ég veit að ég er búin að vera svolitið frá vinnu vegna veikinda barna en Torfi hefur alveg líka tekið sér frí til að vera með þau heima. úff það er svo margt sem ég hef ætlað að blogga um en man ekki neitt núna hehe er svo hugmyndasnauð
Húsið gengur vel núna og eru öll herbergi og allt komið, ég hef ekkert getað málað vegna veikinda og svo leifa hendurnar mínar það ekki, er að fara bráðum í aðgerð á vinstri hendi fyrst og má þá ekkert gera í smá tíma svo ef einhver vill koma að mála þá er það í fínu lagi
hehe
En hvað finnst ykkur um eurovision? lögin fara svosem alltaf skánandi en ég bara veit að við komumst ekki í aðalkeppnina því það er ekkert af þessum lögum sem eru grípandi strax nema kannski Heiða því það er einhver taktur í því sem grípur. En mér finnst Jónsi góður og svo Eiríkur Hauksson hef lítið heyrt í öðrum, hlakka bara til að horfa á laugardaginn.
Jæja nenni ekki að skrifa meira, bið bara að heilsa í bili, kv. Björk
Er bara að prófaBjörk Stefánsdóttir
Jæja ætla að prófa blogga á nýjum stað, annars er ég farin að kunna svo vel á blog.central.is en ætla samt að prófa.Það er annars voða lítið að frétta, það var rosa gaman á þorrablótinu, ég held að við Torfi höfum bara bjargað skemmtiatriðunum hehe það er greinilegt að við erum að gera hluti sem fólk tekur eftir
Ég sleppti því alveg að fara í sund eftir þetta þorrablót og ég efast um að við hefðum getað dregið nýja sveitó með í það
Jæja ætla fara lúlla kv. Björk